Breakbeat.is á Jacobsen 2. júlí - 30.06.2009

Breakbeat.is kvöldin, langlífustu klúbbakvöld Reykjavíkurborgar, hafa komið sterk inn á næturklúbbnum Jacobsen undanfarið og halda sem fyrr áfram að rúlla með flottustu drum & bass, jungle og dubstep tónana fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. Nú á fimmtudaginn verður boðið upp á spennandi gestasnúða þegar breski plötusnúðurinn Skipple og austfirska undrabarnið Muted stíga á stokk á Jacobsen en þeim til trausts og halds verður Breakbeat.is fastasnúðurinn Ewok. Fjörið hefst klukkan níu og það er frítt inn.

Skipple, sem heitir réttu nafni Hugh Counsell, er fæddur í Ástralíu en hefur frá unga aldri alið manninn í Lundúnaborg. Danstónlistarbakterían greip Skipple á táningsárunum og hefur hann um árabil reynt fyrir sér sem plötusnúður í jungle, garage og dubstep tónlistarstefnunum. Í skífuþeytingum sínum blandar Skipple saman ýmsum stefnum og straumum, nýjustu og ferskustu dubstep tónarnir heyrast í bland við garage og house klassíkera. Hefur hann leikið listir sínar um víðan völl og er meðal annars með þátt á hinu virta Sub.fm netútvarpi auk þess sem hann vinnur fyrir dubstep útgáfuna Hotflush.

Egilstaðarpeyjinn Bjarni Rafn Kjartansson semur drum & bass og aðra raftónlist undir nafninu Muted. Melódískar og djúpar tónsmíðar hans hafa getið honum gott orð og hefur frægðarstjarna hans í drum & bass heiminum farið hratt rísandi. Belgíska útgáfan Influenza Media gaf um dagin út frumraun Bjarna, lagið “The Beach” en fleiri lög eru væntanleg frá kappanum á útgáfum eins og Cylon og Modern Urban Jazz á næstunni. Þetta er í fyrsta sinn sem Muted spilar á Breakbeat.is kvöldi en búast má við heljarinnar drum & bass bræðingi frá þessum hæfileikaríka pilti.

Ewok ætti ekki að þurfa að kynna fyrir íslenskum danstónlistaraðdáendum en hann hefur í hartnær áratug staðið vaktina bakvið spilarana og leikið fyrir dansi á flestum skemmtistöðum Reykjavíkur.

Sem áður segir fara herlegheitin fram á Jacobsen, Austurstræti næstkomandi fimmtudag, 2. júlí. Það er frítt inn en fyrstu gestir kvöldsins fá óvæntan glaðning! Upphitun fyrir kvöldið fer fram í útvarpsþættinum Breakbeat.is á Xinu 97.7 miðvikudagskvöldið 1. júlí 23-01.



Hlekkir:
Muted á Myspace
Skipple á Myspace
Facebook viðburður


Deila með vinum:



0 hefur röflað

    Þú þarft að vera innskráður til að geta röflað!

    Póstlisti


    Breakbeat.is
    Podcast