Skream á I Love RVK Partýi á Nasa 28. ágúst - 03.08.2009

Raftónlistahópurinn DO-One, listahópurinn og fataframleiðandinn ATG og klúbbakvöldin Vagabondz standa ásamt íslenskum athafnamönnum að heljarinnar klúbbakvöldi á Nasa föstudaginn 28. ágúst næstkomandi undir formerkjunum I Love Reykjavík. Plötusnúðar kvöldsins eru tíu talsins en stærsta nafnið sem  stígur á stokk þetta kvöldið er tvímælalaust breska dubstep undrabarnið Skream.

Af öðrum sem koma fram þetta kvöldið má nefna Kanio, Equalizers, Casanova, Solarity, Rattus Rattus og Brooksy. Tónlistin verður fjölbreytt allt frá dubstep og breakbeat tónum yfir í techno og minimal keyrslu. Forsala á viðburðin er hafinn á Midi.is

Hlekkir:
I Love RVK á Facebook
I Love RVK á Midi.is


Deila með vinum:



0 hefur röflað

    Þú þarft að vera innskráður til að geta röflað!

    Póstlisti


    Breakbeat.is
    Podcast