Hafðu áhrif á árslista Breakbeat.is - 02.01.2012

Laugardagskvöldið 21. janúar næstkomandi verður árslisti Breakbeat.is fyrir árið 2011 kynntur í beinni útsendingu á Xinu 97.7 og herlegheitunum fagnað með árslistakvöldi síðar um kvöldið.

Eins og venjan er getur þú, lesandi góður, haft áhrif á árslistann. Mikið kom út af góðri tónlist á árinu, til upprifjunar er hægt að líta á Breakbeat.is topp tíu lista síðasta árs hér á vefnum. Sendu okkur svo póst á arslisti@breakbeat.is með helstu lögum og breiðskífum síðasta árs að þínu mati eða öðru tónlistartengdu sem stóð upp úr á árinu 2011. Einnig er hægt að hafa samband við Breakbeat.is í gegnum Twitter og Facebook

Listinn verður svo settur saman lýðræðislega af Breakbeat.is genginu og kynntur á X-inu í beinni útsendingu þann 21. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um útsendinguna og árslistakvöld eru svo væntanlegar hér á vefinn innan skamms.


Deila með vinum:



0 hefur röflað

    Þú þarft að vera innskráður til að geta röflað!

    Póstlisti


    Breakbeat.is
    Podcast