Renegade Hardware í gír - 24.06.2009

Harðhausarnir hjá Renegade Hardware hafa sent frá sér ófáa slagarana í gegnum tíðina og hafa margir af heitustu listamönnum drum & bass senunar gefið út undir merkjum þessara merku útgáfu. Hardware menn sitja þó ekki auðum höndum og eru í óða önn að skipuleggja næstu útgáfur. Nýjasta skífa þeirra er eftir Gridlok inniheldur lögin "Los Angeles" sem er óður til heimaborgar Gridlok og á b-hliðinni er að finna gólfatryllinn "Illegal". Næstu skífur þar á eftir munu svo geyma tónsmíðar frá mönnum á borð við Icicle, Raiden og Cern.

Hlekkur


Deila með vinum:



0 hefur röflað

    Þú þarft að vera innskráður til að geta röflað!

    Póstlisti


    Breakbeat.is
    Podcast