Breakbeat.is Pub Quiz og All Nighter á Prikinu á föstudaginn! - 18.05.2010

Breakbeat.is bryddar upp á nýbreytni og efnir til pub quiz tengdu taktabrotstónlist ýmiss konar í gegnum árin. Fyrsta pub quiz Breakbeat-piltanna fer fram á Prikinu á föstudaginn og eftir það leika plötusnúðar Breakbeat.is fyrir dansi.

Ert þú viskubrunnur um drömmen, veistu allt um dubstep? Geturðu talið upp catalogue númer á Moving Shadow og þekkirðu öll remixin af Inner City Life? Manstu hver hitaði upp fyrir N-Trance í Kolaportinu og hvenær Skýjum Ofar var á dagskrá X-ins?

Hvort sem þú svarar játandi eða neitandi er Breakbeat.is pub quizið eitthvað fyrir þig. Vegleg verðlaun fyrir það lið sem svarar flestum spurningum rétt og góðar stundir fyrir alla hina.

Fyrirkomulag Pub Quiz:

* Quizið hefst kl 22:00
* Hámark 3 í liði
* 30 spurningar
* Netsímar, fartölvur og önnur slík tól eru vitaskuld óheimil
* Spurt verður úr sögu taktabrotstónlistar innanlands og utan. Hardcore, jungle, drum & bass og dubstep kemur allt við sögu
* Mútur vel þegnar
* Gagnlegir hlekkir fyrir heimalærdóm:
   www.breakbeat.is/upplysingar/sagan
   www.rolldabeats.com
   www.discogs.com

Það er til mikils að vinna því stigahæsta liðið í lok keppninar hlýtur nafnbótina Breakbeat Nöllarnir 2010, ævivarandi heiður og einn tug bjóra á Prikinu.

Eftir þetta fyrsta "club quiz" Íslandssögunnar verður all nighter tjútt á Prikinu að hætti Breakbeat.is. Það hefst á miðnætti og munu fastasnúðar Breakbeat.is, þeir Kalli og Gunni Ewok, halda uppi fjörinu alla nóttina.

 


Deila með vinum:



0 hefur röflað

    Þú þarft að vera innskráður til að geta röflað!

    Póstlisti


    Breakbeat.is
    Podcast