Útvarpsþáttur Breakbeat.is á nýjum tíma - miðvikudagskvöld milli tíu og tólf - 21.09.2012

Útvarpsþáttur Breakbeat.is hefur verið á dagskrá Xins 97.7, með stuttum hléum, allt frá árinu 2002. Undanfarin misseri hefur þátturinn verið á dagskrá á laugardagskvöldum milli tíu og tólf en frá og með deginum í dag, 21. september, verður þátturinn í loftinu á miðvikudagskvöldum frá tíu til tólf.

Þátturinn verður áfram með sama sniði, taktabrotstónlist ýmis konar í aðalhlutverki og fastir liðir á borð við breiðskífu mánaðarins, topp tíu lista, gestasnúða og klassíkera verða á sínum stað.

Fyrir þá sem ekki hafa tök á að hlusta í beinni er rétt að minna á upptökur af þættinum á tónasvæði Breakbeat.is auk þess sem þeir tæknivæddari geta nælt sér í þáttinn í hlaðvarpsáskrift og fengið hann sjálfkrafa í tölvuna og tónhlöðuna.


Deila með vinum:



0 hefur röflað

    Þú þarft að vera innskráður til að geta röflað!

    Póstlisti


    Breakbeat.is
    Podcast